Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka, nú gengin er sérhver þess gleði og þraut, það gjörvallt er runnið á eilífðar braut, en minning þess víst skal þó vaka. En hvers er að minnast? Og hvað er það þá, sem helst skal í minningu geyma? Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá, það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá. En miskunnsemd Guðs má ei gleyma. Hún birtist á vori sem vermandi sól, sem vöxtur í sumarsins blíðum, í næðingum haustsins sem skjöldur og skjól, sem skínandi himinn og gleðirík jól í vetrarins helkuldahríðum. Hún birtist og reynist sem blessunarlind á blíðunnar sólfagra degi, hún birtist sem lækning við böli og synd, hún birtist þó skærast sem frelsarans mynd, er lýsir oss lífsins á vegi. Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár og góðar og frjósamar tíðir, og Guði sé lof, því að grædd urðu sár, og Guði sé lof, því að dögg urðu tár. Allt breyttist í blessun um síðir. Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár og góðar og blessaðar tíðir. Gef himneska dögg gegnum harmanna tár, gef himneskan frið fyrir lausnarans sár og eilífan unað um síðir. |
gangid haegt um gledinnar dyr i kvöld og nott, og meigi arid sem er nu ad ganga i gard vera ar fridar, gledi og gaefu fyrir alla heimsbyggd |
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.